Þorramót Fjarðar í boccia var haldið laugardaginn 8. mars. Að vanda var bæjarstjórnum Hafnarfjarðar og Garðabæjar og stjórn ÍBH boðið til þátttöku og þökkum við þeim fyrir að heiðra okkur með nærveru sinni. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar sá um dómgæslu og Kiwanisklúbburinn Sólborg sá um veitingar, þökkum við þeim kærlega fyrir það. Svo fór að sveit Fjarðar skipuð þeim Kristínu, Dóru og Hlyni fór með sigur af hólmi. Sveit ÍBH var í öðru sæti, Raggi, Siggi og Valli lentu í þriðja sæti og þau Ingibjörg, Birna og Sigurjón í fjórða sæti. Þessi dagur gefur iðkendum Fjarðar alltaf mjög mikið og þökkum við öllum kærlega sem komu að þessu móti.







