Íslandsmót ÍF í sundi 7.-9. nóvember

Íslandsmót ÍF í sundi var haldið í Laugardagslaug 7. til 9. nóvember.  Fyrir hönd Fjarðar kepptu þau Sigrún, Emelía Ýr, Anna Rósa, Rósa Kristín, Guðfinnur og Róbert Ísak en til þess að hafa tækifæri á að synda á Íslandsmótinu þurfa keppendur að ná ákveðnum lágmörkum í sundgreinum. Framistaða okkar keppanda var stórkostleg og auðséð að við eigum mikið af keppendum sem standa framarlega í sundi fatlaðra á Íslandi.

Sigrún varð Íslandsmeistari í 50m skriðsundi, 100m skriðsundi og 200m skriðsundi.

Emelía varð Íslandsmeistari í 50m baksundi og 50m flugsundi. Hún hafnaði í 3. sæti í 50m skriðsundi og 5. sæti í 200m skriðsundi.

Anna Rósa varð í 2. sæti í 50m baksundi, 50m skriðsundi og 100m baksundi. Hún varð svo í þriðja sæti í 100m skriðsundi og 200m skriðsundi.

Rósa Kristín varð Íslandsmeistari í 100m baksundi, og varð í 4. sæti í 50m skriðsundi, 100m skriðsundi og 200m skriðsundi.

Guðfinnur Vilhelm varð Íslandsmeistari í 200m skriðsundi, 100m baksundi, 400m skriðsundi og 200m fjórsundi.
Róbert Ísak varð Íslandsmeistari í 100m flugsundi, 100m bringusundi, 50m bringusundi og 50m flugsundi.
birt á vef 03.12.2025
Scroll to Top