Fréttir

Flokka- og bikarmót ÍF í sundi var haldið í Laugardalslaug helgina 24. – 25. maí. Fjörður fagnaði bikarmeistartitlinum 16. árið í röð. 
Fjörður átti allmarga flokkameistara á mótinu og stóðu allir sundmenn Fjarðar sig með prýði. 
Sigrún Kjartansdóttir og Róbert Erwin fyrirliðar Fjarðar tóku við bikaranum. 
Eftir mótið var fagnað með pizzaveislu.
 
fleiri myndir á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 25/05/2025

Í dag þann 4. maí tók sundhópur Fjarðar þátt í sundmóti Aspar sem í ár var tileinkað Ólafi Ólafssyni eða Olla eins og hann var alltaf kallaður en Olli féll frá sl. haust. Olli var stofnandi og fyrrverandi formaður íþróttafélags Aspar, við fjarðarliðar minnumst Olla með hlýju og þakklæti. Mótið í ár var eins og alltaf virkilega skemmtilegt þar sem gleði og glens skein í gegn eins og alltaf á Asparmótum. Ásamt hefðbundnum sundgreinum var keppt í flipp sundi en þar er algjörlega frjáls aðferð og því meira flipp því betra ! Eins fengu þjálfarar að spreyta sig og kepptu líka í flipp sundi við mikla kátínu viðstaddra. Í lok móts var keppendum félaganna blandað saman og skipað í nokkrar boðsveitir sem öttu svo kappi.

Iðkendur Fjarðar stóðu sig með sóma öll sem eitt og allmörg persónuleg met voru slegin. Fjörður þakkar vinum sínum í Öspinni fyrir frábært Ollamót.

 

Fleiri myndir eru á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag

birt á vef 04.05.2025

Íslandsmót ÍF í sundi var haldið dagana 11-13 apríl í Laugardalslaug.  Fjörður var með 3 keppendur á mótinu og Róbert Ísak keppti einnig með ÍF og SH
Emelía
50skrið 3.sæti 🥉
100skrið 3.sæti 🥉
50flug 1.sæti 🥇Íslandsmeistari
Anna Rósa
50bak 2.sæti 🥈
50skrið 2.sæti 🥈
200skrið 3.sæti 🥉
100bringa 3.sæti 🥉
100skrið 4.sæti
Sigrún
50bak 3.sæti 🥉
200skrið 2.sæti 🥈
100skrið 1.sæti 🥇 Íslandsmeistari
Róbert Ísak
50flug 1.sæti 🥇Íslandsmeistari
50bringa 1.sæti 🥇Íslandsmet og Íslandsmeistari
100bringa 1.sæti 🥇
Íslandsmeistari
100flug 1.sæti 🥇 Íslandsmeistari
birt á vef 16.04.2025

Kraftlyftingamót ÍF og KRAFT var haldið laugardaginn 12.apríl. Fjörður átti 7 keppendur á mótinu og stóðu þau sig öll frábærlega.

Aníta Ósk -63kg
Íslandsmeistari 🥇
Hnébeygja 80kg
Bekkpressa 50kg Íslandsmet
Réttstöðulyfta 95kg Íslandsmet
Samanlagður árangur=225kg
Íslandsmet og 3ja stigahæst á mótinu

Íris -84kg
Íslandsmeistari 🥇
Hnébeygja 55kg
Bekkpressa 47.5kg
Réttstöðulyfta 90kg
Samanlagt =192.5 kg

Ásmundur-74kg
Íslandsmeistari 🥇
Hnébeygja 60kg
Bekkpressa 60kg
Réttstöðulyfta 100kg Íslandsmet
Samanlagt =220kg

Sigurður Reynir-93kg
Íslandsmeistari 🥇
Hnébeygja 70kg
Bekkpressa 50kg
Réttstöðulyfta 100kg
Samanlagt =220kg Íslandsmet

Máni -120kg 2.sæti 🥈
Hnébeygja 74.5kg
Bekkpressa 62.5kg
Réttstöðulyfta 100kg
Samanlagt =235kg

Emil Steinar-120
Íslandsmeistari 🥇
Hnébeygja 170kg
Bekkpressa 100kg Íslandsmet
Réttstöðulyfta 170kg
Samanlagt =440kg og annar stigahæsti á mótinu

Elín +84kg
Bekkpressa 40kg
Íslandsmeistari 🥇

birt á vef 16.04.2025

Laugardaginn 5. apríl var árlegt páskabingó Fjarðar haldið í salnum að Ásvöllum. Að vanda var mikil gleði og mættu um það bil 90 manns.

Svona flott bingó er ekki hægt að halda nema með aðstoð góðra fyrirtækja sem gefa vinninga og þakkar Fjörður þeim kærlega fyrir.

Eftirtalin fyrirtæki styrktu Fjörð:

Ban Kúnn
Brikk
Bæjarbakarí
Dominos
Fitness sport
Hreysti
J. Gunnarsson
Keiluhöllin
KFC
Lemon
Meba
MS
Músík og sport
Pylsuvagninn
Pizzan
Sápa
Z krem
Wok to Walk

     

 

 

Dags. 06/04/2025     

Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum íþróttum í Kaplakrika 16. mars.

Til hamingju öll með árangurinn.
Birt á vef 25/03/2025

Þorramót Fjarðar í boccia var haldið laugardaginn 8. mars. Að vanda var bæjarstjórnum Hafnarfjarðar og Garðabæjar og stjórn ÍBH boðið til þátttöku og þökkum við þeim fyrir að heiðra okkur með nærveru sinni. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar sá um dómgæslu og Kiwanisklúbburinn Sólborg sá um veitingar, þökkum við þeim kærlega fyrir það. Svo fór að sveit Fjarðar skipuð þeim Kristínu, Dóru og Hlyni fór með sigur af hólmi. Sveit ÍBH var í öðru sæti, Raggi, Siggi og Valli lentu í þriðja sæti og þau Ingibjörg, Birna og Sigurjón í fjórða sæti. Þessi dagur gefur iðkendum Fjarðar alltaf mjög mikið og þökkum við öllum kærlega sem komu að þessu móti.

 

Aðalfundur Fjarðar verður haldinn þriðjudaginn 25. mars 2025 í Ásvallalaug, fundarsal 2. hæð og hefst kl. 20:00.
Dagskrá er sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Reikningar félagsins.
4. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fyrir fund til samþykktar.
5. Skýrsla foreldrafélags.
6. Kosið í fastar nefndir félagsins.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning stjórnar og félagslegra skoðunarmanna reikninga félagsins.
9. Félagsgjöld/árgjöld.
10. Önnur mál.
11. Fundarslit.

Íslandsmót í boccia sveitakeppni fór fram í Reykjanesbæ um helgina.  Fjörður átti 5 sveitir og áttu þær misjöfnu gengi að fagna.  Því miður gat ein þeirra ekki keppt vegna veikinda.  Leikar fóru þannig að B og C sveitir komust báðar áfram enduðu á að keppa hvor við aðra um 3. sætið.  Svo fór að B sveitin hafði bronsið.  Vel heppnað mót og þökkum við vinum okkar í Íþróttafélagið Nes kærlega fyrir frábæra helgi.

Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum innanhúss var haldið helgina 22-23.mars í Laugardalshöllinni. Fjörður átti 9 keppendur sem stóðu sig mjög vel

Brynjar
60m hlaup PB 3.sæti
200m hlaup PB 2.sæti
Langstökk PB 3.sæti

Ási
60m hlaup 6.sæti
200m hlaup 5.sæti
Kúluvarp PB 2.sæti

Emil
Langstökk 4.sæti
Kúluvarp 1.sæti Íslandsmeistari

Máni
60m hlaup 8.sæti
Langstökk PB 5.sæti
Kúluvarp 3.sæti

Skúli
400m hlaup 1.sæti Íslandsmeistari
Kúluvarp 4.sæti

Aníta Ósk
1500m hlaup 1.sæti Íslandsmeistari
800m hlaup 1.sæti Íslandsmeistari
Langstökk 3.sæti
Kúluvarp SB 4.sæti

Íris
400m hlaup 2.sæti
Kúluvarp 6.sæti
200m hlaup 2.sæti

Elsa
PB Kúluvarp 9.sæti

Karen
60m hlaup 2.sæti
200m hlaup PB 1.sæti Íslandsmeistari
Langstökk 2.sæti
Kúluvarp PB 3.sæti

Scroll to Top