Bikarmót Asparinnar í Kraftlyftingum

Bikarmót Asparinnar í Kraftlyftingum var haldið þann 30. nóvember. Fjörður var með 6 iðkendur á mótinu. Ásmundur Þór,  Sigurður Reynir og Daníel Tryggvi unnu sína þyngdarflokka og hlutu bikar að launum. Máni og Elín Fanney urðu í 2. sæti í sínum þyngdarflokkum og Íris sigraði sinn þyngdarflokk auk þess að vera stigahæst kvenna og fór því heim með tvo bikara.
    
fleiri myndir á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 03.12.2025
Scroll to Top