Hjörtur Már keppti á Sterkasti fatlaði maður Íslands

Okkar allra besti Hjörtur Már Ingvarsson keppti um helgina á mótinu Sterkasti fatlaði maður Íslands. Þar tók hann þátt í sitjandi réttstöðu. Í fyrstu lyftu tók hann 110 kg og það flaug upp. Í annari lyftu fóru 120 kg upp. Í þriðju síðustu lyftunni var reynt við 130 kg og að sjálfsögðu fór það upp líka og er það persónuleg bæting um 10 kg. Þetta skilaði Hirti í 2. sæti í opnum flokki í sitjandi réttstöðu.

Hjörtur Már er margreyndur sundmaður úr röðum Fjarðar en eftir að skýlan fór á hilluna hefur hann starfað við góðan orðstír við þjálfun hjá Höfrungahóp félagsins.

Innilega til hamingju með frábæran árangur Hjörtur.

Scroll to Top