Uppskeruhátíð Fjarðar fór fram þann 4. júní síðastliðinn. Á uppskeruhátíðinni eru veittar viðurkenningar og íþróttafólk Fjarðar valið. Í ár voru það þau Aníta Ósk Hrafnsdóttir úr frjálsum og Róbert Ísak Jónsson sundmaður sem að urðu fyrir valinu sem íþróttakona og íþróttamaður Fjarðar, frábært íþróttafólk þar á ferð. Veittar voru viðurkenningar í hverjum hópi fyrir sig fyrir framfarir, ástundun og bætingar. Að auki voru veittir farandbikarar félagsins, í sundinu var það Kristrún Helga sem hlaut Arenabikarinn og Frosti sem hlaut Ólafsbikarinn. Í frjálsum var það Ási Þór sem hlaut Hressbikarinn og í kraftlyftingum var það Aníta Ósk sem hlaut Bætiefnabikarinn.

Eftir viðurkenninga athöfnina var boðið upp á grillaðar pylsur. Fjörður þakkar iðkendum og þjálfurum fyrir frábæran vetur.

Boccia

Sund

Frjálsar
Kraftlyftingar

Sjá má fleiri myndir á facebook síðu Fjarðar: https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 09.06.2025






