Róbert Ísak Jónsson / Mynd af Facebook síðu Íþróttasambands fatlaðraVið sögðum frá því fyrir helgi að Róbert Ísak Jónsson hefði orðið tvöfaldur Norðurlandameistari. Hann gerði svo enn betur um helgina og bætti tveimur titlum í safnið og er því fjórfaldur Norðurlandameistari fatlaðra 2018. Á laugardaginn varð hann fyrstur í 100m flugsundi á tímanum 59,65. Hann lauk svo mótinu með því að sigra í 200m fjórsundi á tímanum 2:14,92. Algerlega frábær árangur hjá Róberti Ísak og óskum við honum innilega til hamingju. Tanya Jóhannsdóttir og Heiður Björg Egilsdóttir syntu í úrslitum í 50m skriðsundi og urðu jafnar í 6. sæti. Guðfinnur Karlsson var svo síðastur Íslendinga til að synda á mótinu þegar hann varð fjórði í 400m skriðsundi á tímanum 5:32,86. Til hamingju allir með flott Norðurlandamót.