Norðurlandamót í frjálsum íþróttum fór fram í Turku í Finnlandi helgina 9. og 10. ágúst sl. Fjörður átti 5 keppendur á mótinu. Þrátt fyrir mikinn hita stóð okkar fólk sig með sóma.
Aníta Ósk Hrafnsdóttir sigraði 1500m hlaup á tímanum 7:11,26 og varð norðurlandameistari, Aníta varð einnig norðurlandameistari í 5000m hlaupi þar sem hún sigraði á tímanum 28:04,32. Að auki lenti Aníta í þriðja sæti í kúluvarpi þar sem hún kastaði kúlunni 7,54 metra og þriðja sæti í kringlukasti þar sem hún kastaði kringlunni 13,92 metra.
Brynjar Ingi Ingibjargarson tók þátt í 100m hlaupi þar sem hann hljóp á tímanum 14,18 sek. sem var 9. besti tíminn. í 400m hljóp Brynjar á tímanum 1:07,86 og varð í 5. sæti, hann varð síðan í 6. sæti í 200m á tímanum 29,53 og í 7. sæti í 800m hlaupi á tímanum 3:00,18.
Daníel Smári Hafþórsson keppti í 100m hlaupi og varð í 5. sæti á tímanum 13,73, Daníel tók þriðja sætið í 1500m á tímanum 5:51,76 og 4. sætið í 800m á tímanum 2:43,25. Daníel keppti einnig í langstökki þar sem hann lenti í 4. sæti með stökk uppá 4,7m.
Emil Steinar Björnsson landaði þremur silfur medalíum í kastgreinum en hann kastaði kúlunni 8,02m. Hann kastaði kringlunni 22,57m og spjótinu kastaði Emil 19,9m.
Karen Guðmundsdóttir lenti í 3. sæti í 100m hlaupi á tímanum 17,16, hún varð í . sæti í 200m hlaupi á tímanum 37,24. Karen stökk 3,34m í langstökki sem skilaði henni 3. sætinu. Í kúluvarpi varð Karen í 4. sæti með kast upp á 7,45m og hún varð í 2. sæti í spjótkasti þar sem hún kastaði spjótinu 22,64m.
Hópurinn var ánægður með ferðina og Fjarðarfjölskyldan er stolt af þessu flotta árangri frjálsíþróttafólksins okkar.

fleiri myndir er hægt að sjá á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 14.0.2025






