Íslandsmót í boccia sveitakeppni fór fram í Reykjanesbæ um helgina. Fjörður átti 5 sveitir og áttu þær misjöfnu gengi að fagna. Því miður gat ein þeirra ekki keppt vegna veikinda. Leikar fóru þannig að B og C sveitir komust báðar áfram enduðu á að keppa hvor við aðra um 3. sætið. Svo fór að B sveitin hafði bronsið. Vel heppnað mót og þökkum við vinum okkar í Íþróttafélagið Nes kærlega fyrir frábæra helgi.







