Aðalfundur Fjarðar verður haldinn þriðjudaginn 24. mars 2026 í Ásvallalaug, fundarsal 2. hæð og hefst kl. 20:00.
Dagskrá er sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Reikningar félagsins.
4. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fyrir fund til samþykktar.
5. Skýrsla foreldrafélags.
6. Kosið í fastar nefndir félagsins.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning stjórnar og félagslegra skoðunarmanna reikninga félagsins.
9. Félagsgjöld/árgjöld.
10. Önnur mál.
11. Fundarslit.
Uncategorized
Það er nóg að gera hjá afreks sundmönnum Fjarðar en helgina 20. til 30. nóvember fór fram Norðurlandamót í Laugardagslaug. Fyrir Fjörð syntu þau Emelía Ýr, Sigrún, Anna Rósa, Rósa Kristín, Guðfinnur og Róbert Ísak. Okkar stóð sig vel að vanda, settu persónuleg met og nældu sér í nokkur verðlaun. Róbert Ísak varð Norðurlandameistari í 100m bringusundi og setti Íslandsmet í 50m flugsundi. Fjörður óskar keppendunum til hamingju með árangurinn.
Emelía Ýr
50bak 39.09 komst í úrslit og synti þar á bættum tíma 38.47 og varð í 6.sæti
50skrið 34.94
50flug 35.88 2.sæti
100flug 1:23.68 3.sæti
100skrið 1:19.25
Sigrún
50bak 52.68 komst í úrslit og synti þar á tímanum 52.65 og varð í 5.sæti
50skrið 40.39 komst í úrslit og synti þar á tímanum 40.37 og varð í 7.sæti
200skrið 3:13.12 3.sæti
100bak 1:59.39 3.sæti
100skrið 1:29.05 komst í úrslit og synti þar á bættum tíma 1:27.60 og varð í 4.sæti
Anna Rósa
50bak 42.75
50skrið 33.13 komst í úrslit og synti þar á tímanum 32.21 og varð í 5.sæti
100bak 1;28.77
100bringa 1:42.81
100skrið 1:13.57
Rósa Kristín
50bak 42.75
50skrið 35.42
200skrið 2:42.34
100bak 1:29.73
100skrið 1:16.84
Guðfinnur Vilhelm
400skrið 5:34.65
100bringa 1:34.77
200fjór 3:02.40 2.sæti
Róbert Ísak
100flug 58.67 2.sæti
100bringa 1:08.22 1.sæti og Norðurlandameistari
50bringa 30.83 2.sæti
50flug 26.04 2.sæti Íslandsmet
Hægt er að sjá myndir frá mótinu á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 03.12.2025
Bikarmót Asparinnar í Kraftlyftingum var haldið þann 30. nóvember. Fjörður var með 6 iðkendur á mótinu. Ásmundur Þór, Sigurður Reynir og Daníel Tryggvi unnu sína þyngdarflokka og hlutu bikar að launum. Máni og Elín Fanney urðu í 2. sæti í sínum þyngdarflokkum og Íris sigraði sinn þyngdarflokk auk þess að vera stigahæst kvenna og fór því heim með tvo bikara.


fleiri myndir á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 03.12.2025
Aníta Ósk og Emil Steinar kepptu þann 15. nóvember í Kraftlyftingum á Special Olympics í Cluj Napoca Rúmeníu Geggjaður dagur hjá þeim báðum og miklar bætingar.
Aníta Ósk
Hnébeygja 85kg PB
Íslandsmet
Bekkpressa 52.5kg PB
Íslandsmet
Réttstöðulyfta 102.5kg PB
Íslandsmet
Samanlagt =240 stig
IPF stig 44.49
4.stigahæsta kona á mótinu
Emil Steinar
Hnébeygja 185kg PB 
Bekkpressa 105kg PB 
Réttstöðulyfta 185kg SB 
Samanlagt =475 stig 
IPF stig 45.60
3.stigahæsti karl á mótinu

fleiri myndir á facebooksíðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 03.12.2025
Íslandsmót ÍF í sundi var haldið í Laugardagslaug 7. til 9. nóvember. Fyrir hönd Fjarðar kepptu þau Sigrún, Emelía Ýr, Anna Rósa, Rósa Kristín, Guðfinnur og Róbert Ísak en til þess að hafa tækifæri á að synda á Íslandsmótinu þurfa keppendur að ná ákveðnum lágmörkum í sundgreinum. Framistaða okkar keppanda var stórkostleg og auðséð að við eigum mikið af keppendum sem standa framarlega í sundi fatlaðra á Íslandi.
Sigrún varð Íslandsmeistari í 50m skriðsundi, 100m skriðsundi og 200m skriðsundi.
Emelía varð Íslandsmeistari í 50m baksundi og 50m flugsundi. Hún hafnaði í 3. sæti í 50m skriðsundi og 5. sæti í 200m skriðsundi.
Anna Rósa varð í 2. sæti í 50m baksundi, 50m skriðsundi og 100m baksundi. Hún varð svo í þriðja sæti í 100m skriðsundi og 200m skriðsundi.
Rósa Kristín varð Íslandsmeistari í 100m baksundi, og varð í 4. sæti í 50m skriðsundi, 100m skriðsundi og 200m skriðsundi.
Guðfinnur Vilhelm varð Íslandsmeistari í 200m skriðsundi, 100m baksundi, 400m skriðsundi og 200m fjórsundi.
Róbert Ísak varð Íslandsmeistari í 100m flugsundi, 100m bringusundi, 50m bringusundi og 50m flugsundi.

birt á vef 03.12.2025
Íslandsmót ÍF í Boccia var haldið helgina 25. – 26. október á Akureyri. Frá Firði voru 13 keppendur og komust 7 þeirra í úrslit sem spiluð voru á sunndeginum. Í fyrstu deild varð Ragnar Björnsson Firði í 1. sæti og Guðrún Ólafsdóttir Firði í 2 sæti. Í fjórðu deild varð Elín Berg Stefánsdóttir Firði í 3. sæti. Góð ferð til Akureyrar hjá okkar fólki.




birt á vef 29.10.2025
Sundmót Fjarðar var haldið laugardaginn 25. október. Ásamt Firði, ÍFR og Ösp tóku þátt keppendur frá SH sem margir voru að stíga sig fyrstu skref á sundmóti. Keppendur allra félaga voru að standa sig með stakri prýði og voru mörg persónuleg met slegin.

Myndir frá mótinu má sjá á facebook síðu Fjarðar
birt á vef 29.10.2025
Íslandsmót ÍF í frjálsum Íþróttum fór framm á Selfossvelli utanhúss dagana 23-24 ágúst.
Íþróttafélagið Fjörður var stigahæsta félagið á mótinu og unnu keppendur Fjarðar samtals 31 verðlaun, 12 gullverðlaun, 12 silfurverðlaun og 7 bronsverðlaun.
Daníel Smári
Langstökk 5.00 PB
Íslandsmeistari
100m 13.05
Íslandsmeistari
200m 27.56
Íslandsmeistari
400m 105.40
Íslandsmeistari
1500m 5.36.24
Íslandsmeistari
Aníta Ósk
400m 127.76PB
Íslandsmeistari
Kringla 14.80 4sæti
Sleggjukast 18.10 PB 4.sæti
Kúluvarp 7.49 
1500m 7.06.53
Íslandsmeistari
Máni
Kúluvarp 6.09
Kringla 14.18 PB 
Sleggjukast 16.04 PB
Spjótkast 17.34
Skúli Steinar
1500m 6.53.88 
Kúluvarp 5.19 4.sæti
Brynjar Ingi
100m 13.87 
400m 1.08.16 PB
200m 30.76 PB
1500m 6.28.62 
Daníel Tryggvi
100m 23.33 7.sæti
400m 2.05.04 6.sæti
200m 53.30 7.sæti
Íris
Spjótkast 13.17
Kringla 19.19 PB
Kúluvarp 7.08 5.sæti
Ásmundur Þór
100m 17.51 5.sæti
Spjótkast 14.15
200m 35.92 5.sæti
Kúluvarp 6.20 PB 
Kringla 14.90 PB 
Karen
100m 16.33
Langstökk 3.45
Spjótkast 20.80
Íslandsmeistari
200m 36.97 
Kúluvarp 7.62 PB 
Emil Steinar
Kringla 22.65 PB
Íslandsmeistari
Spjótkast 21.56 SB
Íslandsmeistari
Kúluvarp 7.97
Íslandsmeistari
Sleggjukast 20.32 PB
Íslandsmeistari

Fleir myndir á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 28/08/2025
Norðurlandamót í frjálsum íþróttum fór fram í Turku í Finnlandi helgina 9. og 10. ágúst sl. Fjörður átti 5 keppendur á mótinu. Þrátt fyrir mikinn hita stóð okkar fólk sig með sóma.
Aníta Ósk Hrafnsdóttir sigraði 1500m hlaup á tímanum 7:11,26 og varð norðurlandameistari, Aníta varð einnig norðurlandameistari í 5000m hlaupi þar sem hún sigraði á tímanum 28:04,32. Að auki lenti Aníta í þriðja sæti í kúluvarpi þar sem hún kastaði kúlunni 7,54 metra og þriðja sæti í kringlukasti þar sem hún kastaði kringlunni 13,92 metra.
Brynjar Ingi Ingibjargarson tók þátt í 100m hlaupi þar sem hann hljóp á tímanum 14,18 sek. sem var 9. besti tíminn. í 400m hljóp Brynjar á tímanum 1:07,86 og varð í 5. sæti, hann varð síðan í 6. sæti í 200m á tímanum 29,53 og í 7. sæti í 800m hlaupi á tímanum 3:00,18.
Daníel Smári Hafþórsson keppti í 100m hlaupi og varð í 5. sæti á tímanum 13,73, Daníel tók þriðja sætið í 1500m á tímanum 5:51,76 og 4. sætið í 800m á tímanum 2:43,25. Daníel keppti einnig í langstökki þar sem hann lenti í 4. sæti með stökk uppá 4,7m.
Emil Steinar Björnsson landaði þremur silfur medalíum í kastgreinum en hann kastaði kúlunni 8,02m. Hann kastaði kringlunni 22,57m og spjótinu kastaði Emil 19,9m.
Karen Guðmundsdóttir lenti í 3. sæti í 100m hlaupi á tímanum 17,16, hún varð í . sæti í 200m hlaupi á tímanum 37,24. Karen stökk 3,34m í langstökki sem skilaði henni 3. sætinu. Í kúluvarpi varð Karen í 4. sæti með kast upp á 7,45m og hún varð í 2. sæti í spjótkasti þar sem hún kastaði spjótinu 22,64m.
Hópurinn var ánægður með ferðina og Fjarðarfjölskyldan er stolt af þessu flotta árangri frjálsíþróttafólksins okkar.

fleiri myndir er hægt að sjá á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 14.0.2025
Uppskeruhátíð Fjarðar fór fram þann 4. júní síðastliðinn. Á uppskeruhátíðinni eru veittar viðurkenningar og íþróttafólk Fjarðar valið. Í ár voru það þau Aníta Ósk Hrafnsdóttir úr frjálsum og Róbert Ísak Jónsson sundmaður sem að urðu fyrir valinu sem íþróttakona og íþróttamaður Fjarðar, frábært íþróttafólk þar á ferð. Veittar voru viðurkenningar í hverjum hópi fyrir sig fyrir framfarir, ástundun og bætingar. Að auki voru veittir farandbikarar félagsins, í sundinu var það Kristrún Helga sem hlaut Arenabikarinn og Frosti sem hlaut Ólafsbikarinn. Í frjálsum var það Ási Þór sem hlaut Hressbikarinn og í kraftlyftingum var það Aníta Ósk sem hlaut Bætiefnabikarinn.

Eftir viðurkenninga athöfnina var boðið upp á grillaðar pylsur. Fjörður þakkar iðkendum og þjálfurum fyrir frábæran vetur.

Boccia

Sund

Frjálsar
Kraftlyftingar

Sjá má fleiri myndir á facebook síðu Fjarðar: https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 09.06.2025