Í dag þann 4. maí tók sundhópur Fjarðar þátt í sundmóti Aspar sem í ár var tileinkað Ólafi Ólafssyni eða Olla eins og hann var alltaf kallaður en Olli féll frá sl. haust. Olli var stofnandi og fyrrverandi formaður íþróttafélags Aspar, við fjarðarliðar minnumst Olla með hlýju og þakklæti. Mótið í ár var eins og alltaf virkilega skemmtilegt þar sem gleði og glens skein í gegn eins og alltaf á Asparmótum. Ásamt hefðbundnum sundgreinum var keppt í flipp sundi en þar er algjörlega frjáls aðferð og því meira flipp því betra ! Eins fengu þjálfarar að spreyta sig og kepptu líka í flipp sundi við mikla kátínu viðstaddra. Í lok móts var keppendum félaganna blandað saman og skipað í nokkrar boðsveitir sem öttu svo kappi.
Iðkendur Fjarðar stóðu sig með sóma öll sem eitt og allmörg persónuleg met voru slegin. Fjörður þakkar vinum sínum í Öspinni fyrir frábært Ollamót.

Fleiri myndir eru á facebook síðu Fjarðar https://www.facebook.com/fjordurithrottafelag
birt á vef 04.05.2025






